Ingveldur hin fagra

15.07.2007 18:19:59 / inga

Kjúklingurinn fékk sinn gula lit í dag :D

Já, haldiði ekki að hann Mikael Rasmusen hafi unnið Tour de France keppnina í dag :D öllum dönum til mikillar undrunar og gleði. Svo það er jublandi fest hér í landi í dag ;) Já, það var rosalega gaman að fylgjast með þessum merkis atburði í dag. 

En út í annað...það er fyrst núna sem góða veðrið er komið til DK eftir að ég kom heim frá Færeyjum..jeii... Loksins ;) en það á víst bara að vera fram á mánudag og svo á að fara rigna aftur!!!

Mín fór í svaka sólbað í dag í tilefni góða veðursins...sem enaði með því að ég fékk rosa mikinn lit ;) en held samt að ég hafi hálfbrunnið á bringunni...ég geri ekki annað en að maka after-lotion til að slá á hitann!!!

En annars er lítið að frétta af minni núna...restin af famelíunni fór heim á miðvikudaginn svo mín er bara ein eftir hér í danaveldinu. Ég byrja ekki að vinna fyrr en á morgun svo það er bara slappað af og reynt að hafa það notalegt...þó það geti verið dáldið einmanalegt stundum! Hjalli minn fór svo til íslands á föstudaginn síðasta og er því kominn heim á hótel mömmu og hefur það ofsa gott híhí Alltaf gott á hótel mömmu hehe svo ég ákvað að skella öllu upp í kæruleisi og flýtti fluginu mínu til íslands um viku svo ég fer núna á föstudaginn næsta ;) Ég verð víst bara að melda mig veika í vinnunni í næstu viku...sumir verða ekki sáttir við það en mér er alveg sama!!! Ég hef oft fórnað mér fyrir þessar kellur í vinnunni svo mér finnst allt í lagi ef þær gerðu það sama fyrir mig!!!

En jæja, hafið það ofsa gott dúllurnar mínar og verið góð við hvert annað ;)

Knús og kossar

Inga

eydis skrifaði
hlakka ýkt mikið til að hitta þig dúlla...:)
Hjalli skrifaði
Ja þetta var gott hjá þér að breyta fluginu, ekki hægt að hanga þarna ein og yfirgefin:S
Inga skrifaði
Já ég er bara fegin :) en skrítið hvað maður er eitthvað extra viðkvæmur núna og meikar ekki svona einveru lengi :O
Gunna Jóna skrifaði
Hlakka til að sjá þig á klakanum :)
eydis skrifaði
égersamtbúinaðbloggaþúmáttendilegakomentahjámérefþúvilt!;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.