Ingveldur hin fagra

24.02.2008 08:50:01 / inga

Íslandið

Hæhæ

Við famelían erum komin til Íslands og ef ykkur langar að ná í okkur þá er síminn okkar eftirfarandi:

Inga: 823-7419
Hjalli: 847-1153

Ég og Gunnar Hólm erum í Sandgerði eins og er í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa þar :lol: Hér er alveg fullt af snjó okkur til mikillar gleði :d Hjall fór hins vegar beint norður á Akureyri til ömmu og afa þar, þar sem enginn snjór er híhíhí....en við mæðginin förum svo norður til hans þann 7 mars enda er ekki hægt að vera mikið lengur í burtu frá honum :d

Ég er að hugsa um að fara út og búa til snjókarl 8) svona áður en snjórinn fer allur!!! Langt síðan ég hef leikt mér í snjó hehe það væri gaman ef Eydís litla systir mundi vilja koma að leika ;)

Bless bless

Inga og Gunnar Hólm


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 17:37:17 / inga

Gáfnaljósið ég ;)

Jæja við litla famelían fórum í jólatrés-leiðangur í dag ;)

Ég tók það skírt fram í gær að ég ætlaði að fara með Hjalla að finna tré og sjá til þess að hann mundi ekki kaupa alltof stórt tré...því það er jú takmarkað hvað kemst inní okkar litlu stofu sem er nú þegar stútfull af húsgögnum!!!

Svo við fórum í dag að finna tré til að höggva, við vorum í dáldið seinna lagi því öll trén sem eftir voru, voru annað hvort risastór eða rosa breið!!! Eftir að hafa labbað þarna fram og til baka og skoðað öll trén þrisvar ákváðum við bara að fara í Rema 1000 (sem er í sömu götu og við eigum heima) og kaupa tré þar...en áður en við snérum við ákváðum við bara einn, tveir og þrír að höggva eitt tré þarna sem var það allra skásta. Við sáum að við þyrftum bara að snyrta það aðeins og þá yrði það fínt ;)

EN svo þegar við komum heim og skelltum trénu út á svalir sáum við að annað hvort hefur tréð stækkað svona svaðalega á leiðinni heim eða þá að við höfum misreiknað okkur svona svakalega því tréð er það stórt að það kemst varla fyrir á svölunum!!! Svo það kemst engann veginn fyrir inní stofunni okkar :$ jæks!!

Hvað gera bændur þá???

Ég sem hélt ég væri svo klár að ég gæti leiðbeint Hjalla í að finna rétta tréð hehe Silly me!!!

En við erum nokkuð viss um að við séum það klár að við getum föndrað aðeins við tréð og rúttað aðeins til í stofunni svo fyrsta jólatré okkar famelíunnar komist fyrir :haha:

Jólatrés-kveðjur frá Horsens

Inga "gáfnaljós"


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 11:51:05 / inga

Jólin nálgast...

VáVáVá...þetta blogg mitt er alveg að deyja út! Það er spurning um að reyna blása smá lífi í það svona rétt fyrir jólin ;)

Það er samt svo lítið að frétta svo þar að leiðandi lítið að blogga um. Mín er nátla orðin MAMMA eins og flestir vita og heimavinnandi húsmóðir! En ég efast um að  þið munið sitja spennt yfir bloggi af heimilisstörfunum hehe

Jólaundirbúningurinn gengur mjög hægt fyrir sig, við erum reyndar búin að senda alla pakka heim til íslands, sem er viss léttir ;) á bara eftir að kaupa gjöf handa kallinum...en ég nenni ekki að hugsa út í það fyrr en rétt fyrir jól!!! Við eigum reyndar líka eftir að senda öll jólakortin heim...svo það er spurning hvort þau komist í rétt hús fyrir jól...en það verður  bara að hafa það. Það er líka gaman að fá kort á milli jól og nýjárs ;) eða það finnst mér alla vegana. Við eigum nebla enn eftir að taka almennilega mynd af gullmolanum okkar...en því verður reddað um helgina ;)

Annað er nú ekki í fréttum...jú, við erum að fara á jólahlaðborð næsta föstudag....og ef þið hafið áhuga á að passa gullmolan okkar á meðan þá endilega hafið samband ;)

Hilsner,

Ingulíus


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 16:45:46 / inga

Mánudagur til mæðu

Á bílastæðinu við Himmelbjerget í gær:

Dóttirin: Pabbi, eigum við að labba alveg upp á toppinn á fjallinu?

Pabbinn: Já, við löbbum alla leið upp á topp og þegar við erum komin upp þá sjáum við alla leið að enda veraldar.

Dóttirin: Váááááá....

 

Jamm, við fórum skemmtilegan sunnudagsrúnt í gær sem endaði við Himmelbjerget í geggjuðu veðri. Og við bílastæðið heyrði ég þetta skemmtilega samtal hjá feðginum nokkrum sem ætluðu greinilega upp á toppinn. Eftir að hafa heyrt þetta samtal var ég dáldið smeik um að ég gæti labbað alla leið upp....enda í fyrsta skiftið sem ég fer þangað og var ekki alveg viss á hverju ég ætti að eiga von á!!! En ég get ekki annað en hlegið núna því þetta bílastæði sem við vorum á var á toppnum svo þetta var engin göngutúr sem við þurftum að ganga til að komast á toppinn!!! Bara nokkur skref upp á lítinn hól og viola...komin á toppinn hehe ;) En þetta var gaman samt sem áður og rosalega fallegt útsýni upp á hólnum ;) svo vorum við svo heppin að vera þarna á sama tíma og einhver fornbílaklúbbur sem samanstóð af geggjað flottum sporturum ;) Hjalla sérstaklega til mikillar gleði og ánægju hehe

En annars fínt að frétta af minni...uþb vika í settan dag svo það styttist óðum í litla erfingjann okkar ;) En ég væri samt alveg til í að fara af stað í dag...en litla krílið ætlar víst að bíða eftir ömmu sinni sem ætlar að vera viðstödd fæðinguna og hún kemur ekki út fyrr en á mánudaginn næsta. Svo planið er bara að slappa af þangað til....og mögulega taka nokkra göngutúra og jafnvel fara í sund ef ég nenni hehe ;)

Hafið það obboslega gott í haustfríinu og vonandi verður veðrið áfram eins gott og hefur verið í dag og í gær...

Hilsen, Inga


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 07:16:41 / inga

Vissuð þið að það má ekki borða súkkulaði á meðan maður er með barn á brjósti :( hvað geri ég þá???

;)

Það er nú kanski ekki svo vitlaust að henda inn nokkrum línum á meðan ég nenni...ég er í svo miklu letikasti núna að ég nenni ekki neinu öðru en að hanga á netinu!!! Það er svartaþoka úti svo ég nenni ekki út og ég nenni engan veginn að byrja á lærdómnum!!!

Amma og afi í Báru kíktu í heimsókn til okkar um daginn og gistu í 2 nætur og það var ekkert smá gaman og huggulegt að fá þau ;) þau voru svo sniðug að keyra um Noreg, Svíþjóð og Danmörk á sínum eigin bíl og heimsækja vini og ættingja hér og þar sem þau hafa ekki hitt í mislangan tíma. Þetta hefur víst verið skemmtileg upplifun hjá þeim ;) Við ætlum að gera þetta við tækifæri...keyra svona um Skandinavíu, það er ekki hægt annað á meðan við búum hérna úti hehe

Við fórum á Thriller á miðvikudaginn síðasta...dans- og söngshow sem var sett upp hér í bæ...frekar skemmtilegt að heyra alla frægu smellina hans Michael Jacksons ;) Svo er mín komin í mömmuklúbb með nokkrum öðrum íslenskum dívum, og mætti mín í fyrsta skiftið á fimmtudaginn. Þetta á að vera vikulegt og verður gaman að kynnast þessum stelpum betur og læra af þeirra reynslu í barnauppeldi ;) Ég byrjaði líka í meðgönguleikfimi í síðustu viku og mætum við Sunneva (nágrann minn) vikulega í leikfimi og æfum maga- og grindarbotnsvöðvana okkar hehe Ótrúlegt en satt þá er þessi leikfimi furðuerfið!

Hvað meira...ég þyngst og þyngst eins og ég veit ekki hvað....en það er kannski ekkert skrítið miðað við hvað ég er búin að vera dugleg að borða góðan mat upp á síðkastið. Amma og afi buðu okkur á Jensens á fimmtudaginn og þar átum við meira en æskilegt er hehe svo í gær var okkur boðið í hangkjet og eplaköku hjá Magga og Kristínu...sem var nátla rosalega gott. Langt síðan ég hef fengð hangikjet. Svo í dag er barnaafmæli hjá Hirti Frey svo þar mun ég líka borða á mig gat af kræsingum...ef ég þekki mig rétt!!! Svo það er kannski ekkert svo skrítið að litla krílið stækki og stækki með mér og verði mjög líklega yfir 4 kg þegar hann fæðst 8|

En jæja, ég ætla planta mér fyrir framan imban í óákveðinn tíma...og skrifa líklega ekki aftur fyrr en krílið mitt er komið í heiminn!!! En hafið það gott þangað til krúttin mín ;)

Hilsen Inga fitubolla


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 08:56:41 / inga

5 ÁR!!!

Góðann daginn öll sömul ;)

Bara kominn september 8| mikið rosalega er tíminn fljótur að líða....en samt svo lengi!!! Eða er ég bara svona skrítin hehe

En í dag eru akkúrat 5 ár síðan ég og minn elskulegi bróðir stukkum upp í vél og fluttum af landi brott og námum land í Horsens í Danmörku!!! Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá...ekki liðu nema 6 mánuðir þar til Bjarni flúði aftur til kalda Íslands...en ég er hér enn og mun vera það eitthvað lengur ;) En mikið rosalega yrði það samt gaman ef Bjarni kæmi hingað í heimsókn með systur sinni í okt/nóv. ;) en það er víst ekki allt hægt!

Ég smakkaði nýjan danskann rétt í gær í vinnunni. Þetta er svona "haust" réttur þar sem núna er eplatínslutímabilið byrjað. Og hvað haldið þið að þetta hafi verið??? Æbleflesk takk fyrir!!! Já þegar mín mætti í vinnu tók á móti mér þessi yndislega eplalykt...svo ég hélt að það væri verið að baka eplaköku til að hafa með kvöldkaffinu....en nei þetta var æbleflesk...sem eru soðnir eplabitar með steiktu beikoni ofaná. Margir borða þetta ofan á rúgbrauð líka!!! En ég verð nú að segja að það væri alveg hægt að venjast þessum rétti og finnast þetta gott einhvern tíman....en þetta var alltof skrítin samsetning fyrir mig...svo lítið var um matarlist hjá mér!!!

Annars er lítið að frétta...ég bara nýt þess að vera ólétt, ég hef lítið verið að vinna...og er að hugsa um að hætta því bara og fara einbeita mér af skólanum sem byrjar í næstu viku.

Hafið það gott krúttin mín,

Knuz Inga


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 15:11:52 / inga

Loksins smá færsla

Góðann daginn, góðann daginn,

Vá það hefur leggst yfir mig alveg svakalegt bloggleti síðustu vikurnar og ætlar víst ekkert að linna...en finnst samt ég verða skrifa smá núna...þó ég sé ekkert að nenna því!!!

Það er allt gott að frétta eins og alltaf...ég er búin að vera á Íslandi í tæpan mánuð og hef haft það alveg með eindæmum gott ;) Kom svo hingað til Akureyrar á föstudaginn síðasta og ætla vera hér hjá kallinum mínum þangað til við förum saman heim þann 20.ágúst.

Við erum flutt á kollegíið...Hjalli skrapp út og flutti stærstu húsgögnin í síðustu viku svo restin bíður okkar þegar við komum heim! Þetta er orðið svo mikið DRASL sem við eigum svo við þurfum líklegast að henda slatta...en held það verði samt dáldið erfitt hehe

Við fórum í brúðkaup á laugardaginn hjá Valbirni og Katrínu sem var mjög gaman ;) það verður gaman að sjá allar gjafirnar næst þegar við hittum þau ;)

En annars er bara leti og hvíld í gangi hjá mér þessa dagana...ljósmóðir mín skipaði mér að hvíla mig og passa uppá blóðþrýstinginn svo ég þori ekki öðru...fór samt í sund áðan og spókaði mig í sólinni og fékk smá brúnku á bumbuna hehe frekar flott skal ég segja ykkur ;)

En ætla núna að fá mér eitthvað að éta...langar alveg rosalega í ís núna hehe

Kv. Inga


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 15:38:46 / inga

Sumar á Íslandi ;)

Jæja já, mín er bara komin á klakann og búin að vera í góðu yfirlæti á Hótel Mömmu ;) Búin að fara vestur að hitta ömmu og afa og var það ekkert smá gaman að hitta þau ásamt fjölskyldunnar á efri hæðinni. Veðrið var alveg æði sem skemmdi sko ekki fyrir :D

En núna er ferðinni heitið austur yfir fjall og hitta hina ömmu mína og afa þar sem þau eru eiginlega flutt í sumarbústaðinn sinn í Grímsnesinu ;) það verður gott að komast í heitapottinn og svolleis. En veðrið ætlar víst ekkert að vera eins gott þarna fyrir austan eins og það hefur verið hér í Sandgerði síðustu daga....enda telja sumir að það sé einhvers slags "goseveður" í gangi núna...fyrirboði af gosi í Öskju eða þar um kring!!! Við sjáum til hvað það er mikið til í því!!!

Svo á næsta föstudag er Hjalli minn að koma suður og er mikil tilhlökkun í gangi...enda hef ég ekki séð hann svo lengi ;)

En jæja, ég ætla taka mig til fyrir bíltúrinn austur og vona að þið kæru lesendur eigið góða helgi framundan ;)

Knúz og kram,

Inga


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 18:19:59 / inga

Kjúklingurinn fékk sinn gula lit í dag :D

Já, haldiði ekki að hann Mikael Rasmusen hafi unnið Tour de France keppnina í dag :D öllum dönum til mikillar undrunar og gleði. Svo það er jublandi fest hér í landi í dag ;) Já, það var rosalega gaman að fylgjast með þessum merkis atburði í dag. 

En út í annað...það er fyrst núna sem góða veðrið er komið til DK eftir að ég kom heim frá Færeyjum..jeii... Loksins ;) en það á víst bara að vera fram á mánudag og svo á að fara rigna aftur!!!

Mín fór í svaka sólbað í dag í tilefni góða veðursins...sem enaði með því að ég fékk rosa mikinn lit ;) en held samt að ég hafi hálfbrunnið á bringunni...ég geri ekki annað en að maka after-lotion til að slá á hitann!!!

En annars er lítið að frétta af minni núna...restin af famelíunni fór heim á miðvikudaginn svo mín er bara ein eftir hér í danaveldinu. Ég byrja ekki að vinna fyrr en á morgun svo það er bara slappað af og reynt að hafa það notalegt...þó það geti verið dáldið einmanalegt stundum! Hjalli minn fór svo til íslands á föstudaginn síðasta og er því kominn heim á hótel mömmu og hefur það ofsa gott híhí Alltaf gott á hótel mömmu hehe svo ég ákvað að skella öllu upp í kæruleisi og flýtti fluginu mínu til íslands um viku svo ég fer núna á föstudaginn næsta ;) Ég verð víst bara að melda mig veika í vinnunni í næstu viku...sumir verða ekki sáttir við það en mér er alveg sama!!! Ég hef oft fórnað mér fyrir þessar kellur í vinnunni svo mér finnst allt í lagi ef þær gerðu það sama fyrir mig!!!

En jæja, hafið það ofsa gott dúllurnar mínar og verið góð við hvert annað ;)

Knús og kossar

Inga


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 13:57:19 / inga

Góð helgi að baki ;)

Góðann daginn :lol:

Mig langar að byrja þá því að segja ykkur frá því hvað ég á yndislegan kærasta, þeas ef þið vissuð það ekki fyrir híhí :haha:  en haldiði að hann hafi ekki bara byrst hér seint á föstudagskvöldið! Já, ég var farin í háttin og allt þegar ég heyri að það kemur einhver inn um dyrnar...nei nei, er það þá ekki bara Hjalli af öllum híhí enda hélt ég að mig væri að dreyma þegar ég sá hann. Þá hefur hann bara ákveðið að koma mér svona yndislega á óvart og koma heim í helgarfrí :haha: Svo helgin var alveg æðisleg hjá mér skal ég segja ykkur, þó að þetta hafi verið stutt stopp hjá honum þá var þetta alveg æðislegt að eyða þessum tíma með honum 8) og svo eru ekki nema kannski 3 vikur þangað til ég sé hann næst...svo þetta verður bara fljótt að líða held ég og ég er farin að hlakka svo til að komast til Íslands ;) Jeiiii...

Mamma og pabbi eru líka búin að vera hér í heimsókn í tæpar 2 vikur svo það er bara búið að stjana í kringum mig allan tíman ;) Það er ekkert smá sem ég á yndislega fjölskyldu, Eydís er líka búin að vera svo dugleg til að bjóðast til að nudda mig og gilla híhí sem kemur mér dáldið á óvart því hún hefur ekki viljað gilla mig síðan ég fór svo illa með hana þegar við vorum litlar hehe ég náði að plata hana til að gilla mig í heilan klukkutíma með því skilyrði að ég mundi gera það sama við hana....en svo þegar kom að mér að gilla hana þá nennti ég því ekkert!!! En það lítur út fyrir að hún sé búin að fyrirgefa mér núna...sem betur fer því fátt er þægilegra en að láta gilla á sér lappirnar híhí en ætli ég verði ekki að jafn yndisleg við hana þegar hún verður ólétt...hvenær sem það verður.

Það er líka fyndið að segja frá því að það mætti halda að pabbi sé óléttur með mér :lol: hann upplifir öll óléttueinkennin með mér svo þessi litli mallakútur sem hann er með fer sí-stækkandi og svo skiftumst við á að pissa....ótrúlegt hvað sumum er oft mál híhí og svo geyspum við endalaust allan daginn...þreytan er svo mikil við það að gera ekki neitt!!! En það er greinilegt að honum hlakkar til að verða afi :haha:

En jæja, ég nenni ekki að skrifa meir, við vorum svo dugleg að taka þennan langa göngutúr áðan í kringum Bygholm sø svo ég er alveg búin á því núna og verð að leggja mig smá...

Hafið það gott elskurnar mínar,

Knuz Inga


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 09:52:36 / inga

Tölvu vesen...

Ohhh...haldidi ekki ad tövan mín hafi allt í einu ákvedid ad vilja ekki fara inná internetid lengur :( alveg týpist!!! Ég er enginn sérfrædingur á tölvur svo ég veit ekkert hvad er ad thví tölvan sýnir alveg ad nettengingin sé í fullu lagi!!! Held thad sé bara kominn tími á ad taka hana í gegn...ef thad er einhver hér sem kann thad og vill taka thad ad sér thá endilega hafid samband ;) ég nenni sko ekki ad vera koma hingad á bókasafnid í hvert skifti sem mig langar á netid.

En annars er allt ágætt ad frétta, ég er bara á fullu ad vinna en threytan er farin ad kalla. Thad er greinilega of mikid ad vinna svona fulla vinnu eftir langt og gott frí....en ég fer í frí eftir thessa viku svo ég hlít ad lifa thetta af ;)

Elsku litla dúllan mín, hún Eydís, er ad koma til mín á morgun jeiiiii ;) vá mig hlakkar ekkert smá til ;) enda ætla ég ad sækja thau skötuhjúin upp á flugvöll...ekki hægt annad eftir 8 mánada fjarveru. Svo koma mamma og pabbi á föstudaginn ;) æjjj thetta verdur bara yndislegt ad fá thau öll svona á sama tíma ;) en leidinlegt hvad vedrir er búid ad vera leidinlegt...thad rignir bara út í eitt :whut:

En jæja, ég ætla heim og fá mér ad éta...ég keypti svo rosalega grinilegt vínarbraud í bakaríinu ádan og get bara ekki bedid lengur med ad gúffa thví í mig heheh

Knuz og kossar,

Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 12:23:57 / inga

Hiti hiti hiti...

Jæja jæja,

Loksins nenni ég að henda einhverju hingað inn...

Ég kom til Dk á sunnudaginn síðasta, úr góða veðrinu í Færeyjum í rigningu og storm hér í DK!!! En það breyttist fljótt og núna er hitinn um og yfir 20 gráður og mér til mikillar undrunar þá líður mér ekkert alltof vel í þessum hita!!! Það er alltof mikill raki í loftinu og þar af leiðandi þvílík molla allann daginn.

Ég var farin að hlakka rosalega til 17.júni hátíðarinnar sem átti að vera hér í bæ á sunnudaginn en því var barasta frestað!!! Og svo var víst ákveðið að halda upp á 17.júní í gær, akkurat þegar ég var að vinna!!! Ég var ekkert smá fúl því ég var farin að hlakka svo til að fá íslenksar pylsur :( ég var búin að sjá þær í hyllingum í meira en viku takk fyrir....en svona er þetta víst.

Svo var ég að fá að vita hvenær ég á að fá feedback og einkunn frá fyrstu ritgerðinni sem ég skilaði inn í maí....og viti menn, það er á mánudaginn næsta þegar ég er að vinna!!! Voðalega er ég heppin eða þannig :( en ég er að vonast til að geta fengið þetta feedback á maili eða eitthvað svolleis, því ég vill ekki missa af því...enda var ég líka búin að láta vita að ég mundi endilega vilja feedback.

En jam, ég verð að vinna núna næstu 2 vikur, eða út júní. Svo verð ég í 2ja vikna fríi því mamma og pabbi eru að koma í heimsókn, ásamt Eydísi og Eyjó ;) Jeiii...það verður æði :D Svo er bara ferðinni heitið til Íslands í lok júlí....og guð hvað mig hlakkar líka til þess hehe

En jæja, hafið það gott allir saman ;)

Knús og kossar,

Inga


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 17:05:27 / inga

Föstudagur og heil helgi framundan

Góðann daginn,

Það er bara allt gott að frétta héðan úr góða veðrinu 8) Þetta er búið að vera frekar áhugaverð vika finnst mér...það er greinilegt að Færeyjingar hafa nóg að gera í ferðaþjónustunni! Fyrstu dagana mína hér voru ekkert nema ítalir um allar götur enda landsleikur milli ítala og færeyjinga, en svo þegar þeir fóru fylltist townið af skotum...og tala menn um að það hafi verið um 1000 skotar hér í allt...og ALLIR í skotapilsum híhí ekkert smá flottir ;) Fréttir segja að þeir hafi drukkið upp allt ölið sem til var í bænum...og voru heimamenn farnir að örvænta yfir því að eiga ekki nóg handa öllum þessum skara...en það hefur víst verið nóg því ekki var þverfóta fyrir fyllerísdauðum skotum um allar götur á hverjum morgni!!! En nú eru víst allir ítalir og skotar farnir og allt orðið rólegt og hljótt aftur. En það er samt rosalega mikið af túristum hér með bakpoka og göngustafi svo ég er ekki sú eina sem skil ekki Færeyskuna!!!

Við ætlum að fara í ferðalag um helgina....við leigðum okkur bíl í 2 daga og ætlum að keyra eitthvað um eyjarnar....það verður skemmtileg tilbreyting frá hangsinu hér í Torshavn!!! Ég hef ekki fundið mér annað að gera en að taka mér göngutúra um bæinn og er farin að þekkja flest allar göturnar...og búin að sjá flest allt þetta merkilega hérna! Svo finnst mér alveg ómögulegt að koma hingað í þetta langan tíma án þess að fara út fyrir bæinn. Svo það verður bara skemmtilegt að taka rúnt hér í kring :D Við fórum í búð áðan til að kaupa okkur nesti....en viti menn...það er bara svo dýrt hérna og fátæklegt í öllum búðum að það hálfa væri nóg!!! Svo mín ætlar sér að baka kökur til að taka með híhí...það þýðir víst ekkert annað en að vera smá myndarlegur í eldhúsinu...víst kallinn er alltaf svo duglegur að elda kvöldmat!!!

Hafið það obboslega gott yfir helgina krúttin mín,

Knúz og kram

Inga


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 14:37:12 / inga

Blindar eru ókunnar gøtur!

Góðann og blessaðan daginn þið nær og fjær!

Það er geðveikt veður úti takk fyrir ;) og Færeyjar eru bara heillandi ;) Ég tók mér svakalegan göngutúr um bæinn í dag á meðan Hjalli er í vinnunni, og vá ég fann einhvern garð hérna rétt hjá sem er geggjað flottur með fullt af geggjuðum og stórum trjám!!! Það kemur mér rosalega á óvart hvað það er mikill gróður hérna..miklu meira en á íslandi finnst mér, og allt saman svo vel hyrt og fínt...annað en í Sandgerði!!!

Já svo eru húsin hérna algjer snilld hehe sérstaklega í miðbænum...þar eru svona pínulítil tréhús með grasþökum, örugglega síðan 16 hundruð og eitthvað...alla vegana þyrfti ég að beyja mig til að komast inn um hurðirnar hehe þetta er bara dúllulegt og ég mæli eindregið með að fólk komi hingað :)

Jamm, ég náði að klára ritgerðina fyrir tilsettan tíma og skilaði henn daginn áður en ég kom hingað ;) það var enginn smá léttir að klára þetta og vera kominn í sumarfrí. En staffið á elliheimilinu lætur mig samt ekki í friði...hringja daginn út og inn til að fá mig í vinnu...þær eiga víst erfitt með að skilja að það er vinna að vera í skóla og að frí þýðir frí. Þær hringdu næstum á hverjum degi þegar ég var að skrifa ritgerðina og sama hversu oft ég segi þeim að ég sé að vinna mikilvægt verkefni í skólanum þá halda þær áfram að hringja. En svo sá ég til þess að þær mundu skrifa hjá sér að ég yrði í fríi frá 1.júni og í 2 vikur...nei nei hringja þær ekki í mig 1.júní þegar ég er í á leið upp á flugvöll og segjast alveg vita að ég sé í fríi frá deginum í dag....en vildu samt athuga hvort ég gæti ekki unnið kvöldvakt fyrir þær um kvöldið!!! Halló, hvað er málið??? Guð hvað ég get stundum verið hneykluð á þeim...úff.

En jæja, það er annars ekkert í fréttum hjá mér svo ég læt þetta duga. En ég var samt að reyna búa til barnasíðu fyrir bumukrúttið okkar...og hér er afraksturinn: www.barnanet.is/4310

Knuz

Inga og bumbukrúttið sem er 20 vikna...úff tíminn er fljótur að líða hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 07:42:49 / inga

Jæja, próftörnin loksins farin að styttast í annan endann ;)

Jæja, ælti ég hendi ekki inn einn færslu...

Það er alveg brjálað að gera hjá mér í ritgerðaskrifum :S Ég er búin að vera stanslaust að síðan Hjalli fór til Færeyja!!! En sem betur fer er bara ein vika eftir...ég á að skila síðustu ritgerðinni núna næsta föstudag, 1.júní, og vá ég hlakka ekkert smá til 8) Ég er farin að sjá fríið í hillingum, ásamt nuddi og dekri frá kallinum híhí

Ég fór í sónar í gær :lol: og það var ekkert smá gaman að sjá littla krúttið mitt á fleigiferð í mallanum, og gott að vita að allt líti vel út ;) krúttið var meira segja svo heillandi að ljósmóðirin heimtaði að fá að sjá það aftur í næstu viku híhí svo ég fæ að fara 2x í 20 vikna sónar ;) og auðvitað er mín bara sátt við það, og vonast til að fá fleiri myndir...svona rétt áður en ég fer til Færeyja :) Já svo flýtti ljósamóðirin mér um 2 daga, svo núna er áætlaður fæðingardagur 23.október :)

Jamm, eftir að ég skila ritgerðinni á föstudaginn (þeas ef ég næ að klára hana...það er víst miklu erfiðara að skrifa hana en ég bjóst við :whut:) þá á ég beint flug til Færeyja þar sem ég ætla vera í 2 vikur í dekri og flottheitum :D

Svo næsta færsla kemur örugglega ekki fyrr en þá...enda er ég líka búin að lofa að gera barnanets síðu og fleyra fyrir systur mína...svo ég get ekki annað en staðist við orð mín!!!

Hafið það gott í góða veðrinu,

Kv. Inga og bumbukrúttið ;)

P.S. Takið þátt í skoðanakönnuninni ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13